Sólmyrkvinn verður vonandi góð landkynning til framtíðar segir formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu, gott hefði þó verið að fá uppgrip sem honum fylgja utan háannatíma.
„Það er náttúrlega mikil eftirspurn eftir gistingu á þessum tíma, ef við tölum um þetta sem viðburð þá er þetta náttúrulega bara einstakt og mikil jákvæðni í kringum þetta. Svona landkynning hefur vonandi framtíðaráhrif á aukna eftirspurn til landsins,“ segir Björgvin Jóhannesson, formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.
Komið fram yfir afbókunarfrest
Eftirspurnin er mest á Vesturlandi og Vestfjörðum en teygir sig um nær allt land. Björgvin segist ekki hafa áhyggjur af að fólk afbóki sig ef veðurspá verður slæm.
„Í flestum tilfellum gilda ákveðnir afbókunarskilmálar þannig að til dæmis hópar eru bara komnir yfir þau tímamörk að geta afbókað. Við erum náttúrlega búin að ákveða að það verði gott veður þann 12. ágúst þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því.“
Verð hækka með aukinni eftirspurn
Enn er hægt að finna sér gistingu þar sem sólmyrkvinn sést best en verð er allt að helmingi hærra en aðra daga í sumar.
„Það er gríðarleg eftirspurn á þessu tímabili og við þekkjum það með alla svona stóra viðburði eða tónleika, fótboltaleiki þegar eftirspurn er mikil. Við sjáum það núna til dæmis á HM, þá hækka verðin og það gildir bara það sama um þetta.“
„Tilvalið að fá sólmyrkva í apríl“
Björgvin segir sólmyrkvann hitta á háannatíma í ferðaþjónustunni. Uppgrip hefði verið gott á öðrum árstíma.
„Það hefði verið tilvalið til dæmis að fá þennan sólmyrkva í apríl en við ráðum því víst ekki.“