Samkeppniseftirlitið safnar enn gögnum um hvernig olíufélögin hafa brugðist við tímabundinni lækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti á eldsneyti og því er ekki hægt að segja með vissu hvort lækkunin hafi skilað sér að fullu til neytenda, segir forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Það sama á við um nýlega lækkun á heimsmarkaðsverði eftir að Bandaríkin og Íran náðu saman um friðarsamkomulag.
„Það mun að sjálfsögðu vera liður í eftirliti okkar með álagningu félaganna í tilefni af þessari lækkun á virðisaukaskatti,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
„Núna erum við í gagnaöflun, sem hefur staðið frá því að okkur var falið þetta eftirlit með þessari lækkun á virðisaukaskattinum. Við höfum lagt á félögin reglulega upplýsingagjöf og það er pínulítil tímatöf í henni þannig að það líður dálítill tími þar til við fáum staðfestar upplýsingar frá félögunum um álagningu og eldsneytisverð.“
Samkeppniseftirlitið má sekta olíufélög sem fara ekki að lögum um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti.
Hefur lækkunin skilað sér til neytenda?
„Við munum gera fljótlega nánar grein fyrir því, við erum að skoða ákveðna þætti í því. Þannig að ég get ekki fullyrt um það á þessu stigi. Við erum að leita skýringa á ákveðnum atriðum,“ segir Páll. Samkeppniseftirlitið sé enn að leita skýringa á ákveðnum atriðum.
Skoða aðgerðir olíufélaga fyrir og eftir lækkun
„Þetta snýst auðvitað ekki bara um hvort lækkunin skilaði sér 1. maí heldur hvað gerðist í aðdragandanum og líka hvernig þessir keppinautar haga sinni samkeppni á þessu tímabili þar sem lækkunin á sér stað.“
Gagnaöflunin er langt komin og Páll segir að fyrstu upplýsingar ættu að liggja fyrir fljótlega. En hvenær eiga olíufélögin að bregðast við og á hvaða stigi er tekin ákvörðun um hvort beita eigi sektum?
„Það er ekkert tímabært að velta því fyrir sér núna. Við erum á fullu í þessari vinnu og það verður bara að fá að koma í ljós hvort það verði ástæður til að beita viðurlögunum eða öðrum aðgerðum í þessu eftirliti.“