Íbúðafélagið Brák hefur byggt fjórar íbúðir í Langanesbyggð á síðustu árum. Þær fóru strax í leigu og að sögn oddvita sveitarstjórnar er þörf fyrir fleiri. Í nýlegu yfirliti HMS er staðan metin þannig að að byggt hafi verið umfram nýja íbúðaþörf á árunum 2023-2025.
„Umsóknirnar voru fleiri heldur en íbúðirnar þannig að það er augljóst að okkur vantar enn íbúðir hérna, sérstaklega í þessum stærðarflokki. Og innan Þórshafnar, þar sem við erum að byggja þessar íbúðir, virðist vera íbúðaþörf en ekki jafn mikil á Bakkafirði eða í dreifbýlinu,“ segir Jóhann Hafberg Jónasson, oddviti sveitarstjórnar í Langanesbyggð.
Auk leiguíbúðanna hafa verið byggð fleiri íbúðarhús í sveitarfélaginu en Jóhann segir að það vanti aðallega minni íbúðir, bæði fyrir ungt fólk og þá sem eldri eru og vilja minnka við sig: „Það er uppgangur og við viljum bara halda áfram þeirri þróun svo við stöðnum ekki bara hérna, sérstaklega til að geta aukið framboð af atvinnutækifærum og meira til að reyna að draga fólk hingað. Fyrir þau vantar okkur húsnæði.“
Vilja funda með HMS sem fyrst
Jóhann vonast eftir fundi með HMS sem fyrst til að þrýsta á þessi mál. Í bréfi stofnunarinnar til sveitarstjórnar kemur fram að starfsmenn hennar fari um landið á næstu vikum og fundi um íbúðaþörf: „Þeir tala um að þeir ætli að funda með sveitarstjórnarmönnum og fleirum út um allt land til að fara yfir þessi mál. Við þurfum bara að taka fundinn með þeim og sjá almennilega hvað þeir eru að hugsa. Eða hafa samband við þá og þrýsta á þá til þess að halda áfram uppbyggingu á þessu svæði.“