Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu sex mánuðum ársins nam 4,9 milljörðum, sem er sama niðurstaða og á síðasta ári.
Frá þessu segir í tilkynningu frá OR, en árshlutareikningur var samþykktur af stjórn.
Rekstrartekjur samstæðunnar jukust um 13% milli ára og námu 38,8 milljörðum króna samanborið við 34,4 milljarða króna á sama tímabili í fyrra.
Á tímabilinu fjárfesti OR fyrir 15 milljarða króna sem er aukning úr 12,9 milljörðum króna fyrstu sex mánuði ársins 2025. Fjárfestingar beinast einkum að „uppbyggingu og endurnýjun veitukerfa, öflun orkuforða og að orkuvinnslu.“
Haft er eftir Sævari Frey Þráinssyni forstjóra að góða afkomu megi rekja til aðhalds sem gripið var til þegar rekstur Norðuráls á Grundartanga lenti í skakkaföllum.
Heildareignir samstæðunnar námu 552 milljörðum króna í lok júní samanborið við 538 milljarða króna í árslok 2025.
Eigið fé nam 284 milljörðum króna og eiginfjárhlutfallið var 51,5%.