Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst - Vísir
Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst - Vísir
📅 2026-04-21 12:54:01👁️ 2 lesið
Lögregla greindi frá því í morgun að björgunarsveit hefði bjargað tveimur sem ultu kajak í gærkvöldi. Þeir hafi verið kaldir en ómeiddir og fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar. Um var að ræða Jón Pétur Zimsen þingmann Sjálfstæðisflokksins og sautján ára son hans sem höfðu farið út til veiða í Kollafirði á kajökum. Jón Pétur greindi frá lífsreynslunni á Facebook en fréttastofa sló á þráðinn til þess að heyra nánar af málinu. Hann segir að um röð atvika - eða óhappa hafi í raun verið að ræða.Jón Pétur lenti snemma í vandræðum með pedalspaða á bátnum og þegar hann beygði sig fram til þess að laga spaðann skapaðist ójafnvægi í bátnum. „Ég bara velti bátnum, sem ég hef aldrei gert áður, og enda í sjónum“ segir Jón Pétur. Hann synti þá til sonar síns og fór upp í kajakinn hans. Þar skapaðist einnig ójafnvægi og þrátt fyrir að þeir hafi reynt að jafna þyngdina í bátnum fór ekki betur en svo að hann valt einnig.„Þetta er svona röð óhappa og maður hefði mögulega getað farið meira varlega en auðvitað eru slysin bara þannig að ef maður vissi fyrir fram að þau væri að fara að gerast hefði maður gert hlutina öðruvísi.“
Sonur Jóns Péturs kom sér upp á kjöl bátarins en Jón Pétur hékk á honum og var í sjónum.„Við vorum í björgunarvestum en það var dálítið óþægilegt að ég var í smekkbuxum sem losnuðu af mér og runnu niður á hæla þannig ég var heftur í því að hreyfa fætur sundur og saman. Þannig það var svolítið erfitt að synda með það í kringum ökklana.“Hann segir þetta hafa verið óþægilegt en að þeir hafi þó haldið ró sinni. Þrátt fyrir að sími Jóns Péturs hafi lent í sjónum gat hann hringt á Neyðarlínuna sem kallaði út björgunarsveit. Hjálpin barst þegar hann hafði verið í sjónum í um hálftíma.„Ég fann alveg að ég var farinn að missa mátt í útlimum því blóðið leitar inn í innri líffæri til að halda hita á hjarta, lungum og heila. Ég fann það í höndunum þegar ég var að reyna að vega mig upp á bátinn að maður svona missti takið og var ekki með almennilegt grip í fingrunum.“
Hitaður eins og grilluð samloka
Sjúkrabílar biðu feðganna þegar þeim hafði verið komið í land og líkamshiti Jóns Péturs reyndist vera kominn niður í 32 gráður. Hann segir að vel hafi verið hugað að þeim á bráðamóttöku og voru þeir útskrifaðir um klukkustund eftir komu.„Maður var að reyna að láta ekki hafa mikið fyrir sér en var eiginlega kaffærður í hálfgerðu knúsi og hitaður upp eins og grilluð samloka,“ segir Jón Pétur kíminn. „Það var hitablástur og við fengum vökva í æð til þess að hita okkur upp líka.“Hann segist uppfullur þakklætis eftir lífsreynsluna og segir fólkið í björgunarsveitum landsins dýrmætt.„Það er ómetanlegt að búa í landi þar sem svona vel er tekið á málum þegar eitthvað bjátar á og þar sem fólk er að gefa tíma sinn í að hjálpa öðrum í neyð. Það er ekki hægt að meta það í neinum verðmætum.“
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyrir réttum 400 árum keyptu niðurlenskir kaupmenn sér eyju. Þau kaup áttu eftir að draga dilk á eftir s...
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæmundsen segir sveitalífið hafa mótað sig mest. Þar hafi einfaldleiki lífsins orðið til þess...
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...
Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á Kýpur við fyrirspurn fréttastofu. Þar kemur fram að evrópsk handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur Ara, s...
Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-16 orrustuþotu. Rannsakendur segja að ...
Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í ...
Íbúar í Piddington, örlitlu þorpi í Oxfordshire á Englandi, undirbúa táknræna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Bretlandi. Ástæðan er fyrirhuguð...
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...