Furðulegt bandalag hefur verið myndað um að berjast fyrir neikvæðni í þjóðaratkvæðagreiðslunni í næsta mánuði. Þeir sem hafa tekið höndum saman eru Sjálfstæðisflokkurinn, Samtök atvinnulífsins og gamli sósíalistaleiðtoginn, öldungurinn Ólafur Ragnar Grímsson. Þessi samsetning er um margt neyðarleg, einkum og sér í lagi fyrir Sjálfstæðismenn sem hafa tekist á við Ólaf Ragnar í áratugi en hann var allan sinn pólitíska feril svarinn andstæðingur Sjálfstæðisflokksins og talaði ávallt illa um flokksmenn hans, einkum forystumennina.
Orðið á götunni: Þarf á peningaöflunum að halda heima og erlendis