Eftir að Bjarni Benediktsson hrökklaðist úr embætti formanns Sjálfstæðisflokksins og sagði af sér þingmennsku eftir afhroð flokksins í kosningunum þann 30. nóvember 2024 og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við sendiherraembætti er Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvestur kjördæmi höfuðlaus her. Þetta kjördæmi hefur hin síðari ár verið flaggskip flokksins en á nú í vök að verjast. Í nýrri Gallup-könnun reyndist flokkurinn vera í þriðja sæti eftir að hafa haft mesta fylgi allra í kjördæminu um árabil.
Ljóst er að í næstu þingkosningum eftir tvö og hálft ár verður flokknum valin ný forysta í kjördæminu því engum gæti komið til hugar að treysta Bryndísi Haraldsdóttur, Rósu Guðbjartsdóttur eða Jóni Gunnarssyni fyrir forystu flokksins í kjördæminu. Efstu sæti Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu eru mikilvægar valdastöður í flokknum með tilliti til formennsku, varaformennsku eða ráðherraembætta þegar og ef flokkurinn kemst aftur í ríkisstjórn.
Orðið á götunni er að Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri flokksins í Kópavogi, hafi takmarkalausan pólitískan metnað. Hermt er að hún hafi þegar sett stefnuna á að tryggja sér efsta sæti flokksins í kjördæminu næst þegar kosið verður til Alþingis, væntanlega í lok árs 2028. Sjálfstæðisflokkurinn myndar nú meirihluta í Kópavogi með Framsókn en samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er meirihluti þeirra fallinn með því að Framsókn hefur misst annan af fulltrúum sínum í bæjarstjórninni. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi en heldur sínum fjórum bæjarfulltrúum ef marka má umrædda skoðanakönnun Maskínu. Verði það niðurstaðan er alls ekki víst að Ásdís haldi stöðu bæjarstjóra þó að nokkrir möguleikar séu fyrir hendi á myndun nýs meirihluta – með eða án Sjálfstæðisflokksins.
Algengt er að sveitarstjórnarmenn noti embætti sín sem stökkpall inn á Alþingi. Um það eru fjölmörg þekkt dæmi úr sögunni. Það getur alveg verið jákvætt og ekkert við það að athuga ef menn eru ekki að flýja sökkvandi skip. Rósa Guðbjartsdóttir virðist hafa séð að flokkur hennar og Framsókn í Hafnarfirði réðu ekkert við að stjórna Hafnarfirði sem er þriðja stærsta sveitarfélag landsins. Rósa hvarf af vettvangi bæjarstjórnar og tók sæti á Alþingi í lok árs 2024. Pólitísk þróun í bænum hefur oft þótt vera mælikvarði á gang þjóðmálanna á Íslandi enda hafa margir áhrifamiklir stjórnmálamenn komið úr Hafnarfirði eins og t.d. Emil Jónsson, Matthías Á. Mathiesen, Árni sonur hans og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra.
Orðið á götunni er að viðskilnaður Sjálfstæðisflokksins eftir yfirstandandi kjörtímabil sé með þeim hætti að fylgið hrynur af flokknum eins og fram hefur komið í skoðanakönnunum sem birtar hafa verið á DV og Vísi.is. Sjálfstæðisflokkurinn hafði mest fylgi allra fyrir fjórum árum en mælist nú í þriðja sæti á eftir Samfylkingunni og Viðreisn sem gætu myndað meirihluta gangi þessar skoðanakannanir eftir. Rósa Guðbjartsdóttir yfirgaf því sökkvandi skip.
Ætla má að barist verði um forystusætin á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur kjördæmi fyrir næstu þingkosningar enda eftir miklu að sækjast. Ásdís Kristjánsdóttir hlýtur að koma sterklega til greina sem leiðtogi listans þegar þar að kemur. Kjósendur í Kópavogi ættu að hafa það í huga þegar þeir greiða atkvæði í Kópavogi þann 16. maí nk. Ekki er víst að Ásdís þjóni bænum lengi í viðbót – hvort sem hún verður í meirihluta eða í stjórnarandstöðu.
Orðið á götunni er að manni Sjálfstæðisflokkurinn í Kraganum ekki forystusæti sín með öflugu fólki þá lýsi það óvæntri uppgjöf.