Lögreglustöð hefur verið opnuð í austurríska bænum Braunau am Inn í húsinu þar sem einræðisherrann Adolf Hitler fæddist í 20. apríl 1889. Deilt hefur verið um það í áratugi hvað eigi að gera við húsið sem var upphaflega gistiheimili byggt á 18. öld.
Bjóð aðeins í húsinu í nokkrar vikur
Hitler bjó aðeins í húsinu í nokkrar vikur. Fjölskylda hans fluttist í annað hús í bænum stuttu eftir að hann fæddist og flutti endanlega úr bænum þegar hann var þriggja ára. Hitler kom aftur til bæjarins 1938 á leið sinni til Vínar eftir að hafa innlimað Austurríki í Þýskaland nasismans. Húsið hefur síðan þá gengið í gegnum miklar endurbætur.
Innanríkisráðuneyti Austurríkis leigði það af eiganda þess í áratugi og borgaði háa leigu til þess að koma í veg fyrir að húsið yrði ferðamannastaður fyrir ferðamenn sem aðhyllast hugmyndafræði öfgahægrisins.
Ýmis starfsemi hefur verið í húsinu í gegnum árin, meðal annars hefur það hýst góðgerðarsamtök, daggæslu og vinnustofu fyrir fólk með sérþarfir. 2011 hætti öll starfsemi þar eftir að leigusalinn, kona að nafni Gerlinde Pommer, neitaði að gefa leyfi fyrir endurbótum á húsinu. Hún neitaði einnig lengi að selja það stjórnvöldum og það stóð autt í mörg ár meðan leyst var úr deilum Pommer og stjórnvalda.
Vildi rífa húsið en það var umdeilt
Austurríska þingið samþykkti lög 2016 sem leyfðu stjórnvöldum að gera húsið upptækt. Pommer fékk yfir 800 þúsund evrur, jafnvirði rúmlega 119 milljóna króna, í bætur. Hún stefndi síðar stjórnvöldum og sagði bæturnar hafa verið of lágar en tapaði málinu fyrir dómstólum.
Þáverandi innanríkisráðherra vildi láta rífa húsið og byggja annað í staðinn en það var umdeilt. Margir sögðu að það að rífa húsið jafngilti því að afneita nasismanum í sögu Austurríkis.
Stjórnvöld tilkynntu síðan um áætlanir sínar um að breyta húsinu í lögreglustöð 2019 og hrintu af stað hönnunarsamkeppni. Framkvæmdirnar kostuðu milljónir evra og nú hefur lögreglustöðin loksins verið opnuð.
Minningarsteinn einu ummerkin um Hitler
Ekki eru allir á eitt sáttir með niðurstöðuna og segja það að opna lögreglustöð í húsinu senda röng skilaboð. Einhverjir vildu að opnuð yrði miðstöð þar sem fortíð nasismans yrði tekin fyrir og aðrir vildu að góðgerðarsamtökin Lebenshilfe fengju að vera með starfsemi þar áfram.
Utan á húsinu eru engin ummerki um sögu þess og það er vel vaktað til að koma í veg fyrir að nýnasistar athafni sig þar. Einu ummerkin um Hitler er steinn á götunni við húsið sem var settur þar 1989.
Hann er úr útrýmingarbúðunum Mauthausen sem voru nærri bænum og á honum stendur: „Aldrei aftur fasismi; til minningar um milljónir látinna.“