Opið er fyrir skráningu atriða á Menningarnótt, afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur, sem haldin verður 22. ágúst.
Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að öllum sé velkomið að skrá sig til leiks og vera með viðburð. Frestur til að skrá viðburði er til og með 10. ágúst.