OnlyFans fyrirsætur í herferð gegn loftslagsvá
Guardian spyr: Felst „kraftaverkið“ í nærbuxum?
Breska vinstriútgáfan The Guardian fjallar með velþóknun um framtakið. Í frétt blaðsins segir að kraftaverk þurfi til að vekja almenning úr Þyrnirósarsvefni í loftslagsmálum. Jörðin sé stöðugt að hitna og bráðum verði ekki aftur snúið. „Getur kraftaverkið,“ spyr Guardian, „leynst í konu á nærbuxum með loftslagsorðræðu á vörum?“
Blaðamaður Guardian deilir með lesendum þeim áhyggjum sínum að áhorfendur að OnlyFans fyrirsætum ræða loftslagsvá hafi kannski í huga annað en jarðhita og sprengihreyfla bifreiða er þeir renna augum yfir kynþokkafullar konur afklæðast á skjánum. Boðskapurinn gæti farið fyrir ofan garð og neðan hjá þeim sem horfa frekar en hlusta.
Athygli eða áróður?
Vefsíða sem sérhæfir sig í loftslagsumræðu spyr hvort Guardian nái nokkru sinni að toppa fréttina um að fyrirsætur á nærbuxum geri kannski kraftaverk í þágu málstaðarins. Aðrir benda á að OnlyFans stúlkur trekkja frekar en Greta Thunberg.