Mjög ölvaður maður var handtekinn í gærkvöld eða nótt og vistaður í fangaklefa grunaður um líkamsárás. Þetta kemur fram í morgunpósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu án þess að frekari málavextir séu tíundaðir.
Auk þessa voru tveir handteknir fyrir innbrot í miðborg Reykjavíkur og leyst úr ágreiningi veitingastaðar við ölvaða gesti sem ekki gátu borgað fyrir mat sinn. Brunalykt í húsi í vesturborginni reyndist berast frá reykelsi sem verið var að brenna í einni íbúðinni.
Lögreglumenn aðhöfðust ekkert vegna öskrandi manna á skemmtistað þegar á daginn kom að þeir voru að rífast hástöfum og börn grunuð um að grýta skólabyggingu í austurbænum reyndust á bak og burt þegar lögreglu bar að.