Verð á hráolíu lækkaði um rúm þrjú prósent í morgun og hefur lækkað um meira en fimmtán prósent á einni viku.
Fréttir af fyrirhuguðu samkomulagi Írans og Bandaríkjanna og undirritun viljayfirlýsingar í gær hafa orðið til þess að verð á olíu hefur farið lækkandi. Þau tíðindi ættu að greiða fyrir umferð um Hormússund svo hægt sé að flytja olíu og aðrar vörur þar í gegn.
Viðbrögð á hlutabréfamörkuðum voru margvísleg. Hlutabréf hækkuðu í Tókýó, Singapúr, Mumbai, Frankfurt og Manilla en lækkuðu í Sjanghaí, Sidney, Wellington, Bangkok, Jakarta og París.