Sjö ökumenn voru stöðvaðir af lögreglu í dag fyrir að aka á göngugötu í miðbæ Reykjavíkur.
Að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru málin afgreidd á vettvangi.
Þá var maður handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum sem og brot á lögreglusamþykkt. Maðurinn var látinn laus að skýrslutöku lokinni.
Í dagbók lögreglunnar kemur aukinheldur fram að þó nokkrir ökumenn hafi verið stöðvaðir í akstri í dag sem reyndust ýmist keyra of hratt, undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða án ökuréttinda.