Lögreglunni barst tilkynning um rán þar sem árásaraðili hótaði öðrum með eggvopni. Engin slys urðu á fólki og er málið til rannsóknar.
Þetta er meðal annars sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Einn var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar eftir að bifhjóli var ekið á vegrið og þá var ökumaður rafhlaupahjóls fluttur með sjúkrabifreið til frekari læknisskoðunar eftir að hann missti stjórn á því.
Hrækti ítrekað á lögreglubifreið
Við almennt eftirlit lögreglu með hópasöfnun ungmenna tók eitt þeirra upp á því að hrækja ítrekað á lögreglubifreiðina. Ungmennið gaf lögreglumönnum illskiljanlega skýringu á atvikinu. Haft verður samband við forráðamenn og atvikið tilkynnt til barnaverndar.
Tilkynnt um ógnandi einstakling í miðbænum. Hann handtekinn síðar um nóttina þar sem hann var grunaður um innbrot í heimahús.
Þá var ölvaður ökumaður handtekinn grunaður um að valda umferðaróhappi. Ekki urðu slys á fólki en ökumaðurinn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar.