Maður var handtekinn af lögreglu og sérsveitinni á hóteli í miðborginni í nótt eftir að hann ógnaði öðrum manni með hnífi. Hinn handtekni var vistaður í fangaklefa samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Annar maður var handtekinn vegna líkamsárásar í miðborg Reykjavíkur og sá var einnig vistaður í fangaklefa.
Tilkynnt var um þjófnað úr fjórum verslunum í nótt; í Kópavogi, Garðabæ og í tveimur verslunum í póstnúmeri 108.
Nokkrir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða áfengis. Einn ökumaður var tilkynntur til lögreglu eftir að vegfarendur sáu hann aka utan í nokkrar bifreiðar í miðborginni og valda talsverðum skemmdum.
Þá var einn ökumaður sektaður fyrir að aka bíl sínum á gangstétt, en hann játaði brot sitt og kvaðst hafa verið að stytta sér leið.