Leiðtogar frá yfir fjörutíu Evrópuríkjum, EPC-klúbbnum svokallaða, hittast í armensku höfuðborginni Jerevan í dag. Þetta er fyrsti fundur klúbbsins í Kákasus. Armenar hafa undanfarið, undir forsæti Nikols Pashinyan, varfærnislega viljað losna undan áhrifum Rússlands og auka tengsl við önnur ríki Evrópu.
Fulltrúar allra ríkja Evrópusambandsins og leiðtogar þess verða viðstaddir fundinn auk leiðtoga 21 ríkis til viðbótar. Kanadíski forsætisráðherrann Mark Carney er sérstakur gestur fundarins þar sem til stendur að ræða öryggi Evrópu, stöðugleika og framtíðarhorfur.
Carney er fyrsti leiðtogi ríkis utan Evrópu til að sækja þennan óformlega vettvang heim, sem komið hefur saman á hálfs árs fresti frá árinu 2022. Það var að undirlagi Emmanuels Macron Frakklandsforseta og hugsað sem viðbrögð við innrás Rússa í Úkraínu.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hefur boðað komu sína og einnig Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins.
Þátttaka Carneys þykir til marks um að leiðtogar Evrópu vilji halla sér í ríkara mæli að Kanada vegna margvíslegs núnings við Bandaríkin undir stjórn Donalds Trump. Viðbúið þykir þó að andi hans svífi yfir vötnum. Stríðið gegn Íran og viðbrögð leiðtoga Evrópuríkja við því hefur enn aukið á missættið.
Nýjasta dæmið eru hótanir um að kalla þúsundir hermanna brott frá Þýskalandi vegna deilna Trumps við Friedrich Merz kanslara um afstöðu til stríðsins í Íran.
Carney hefur teygt sig í átt til Evrópu og fleiri ríkja og kallað eftir samstöðu í skugga breyttrar heimsmyndar. Almennt hafa ekki verið teknar afgerandi ákvarðanir á EPC-fundunum heldur gefa þeir leiðtogunum tækifæri til skrafs og ráðagerða.