Franskur lögreglumaður sem sagður er aðhyllast „ofbeldisfulla öfgahægri hugmyndafræði“ hefur verið handtekinn, grunaður um að leggja á ráðin um hryðjuverk. AFP greinir frá.
Maðurinn, sem er 35 ára, verður kærður fyrir að skipuleggja hryðjuverk, fyrir ólöglega vopnaeign og fyrir framleiðslu þrívíddarprentaðra vopna. Þetta er haft er eftir heimildarmanni innan dómskerfisins í Frakklandi. Meðal annars er talið að hann hafi ætlað að fremja ofbeldisglæp gegn lögreglunni.
Auk þess verður hann ákærður fyrir að hvetja til hryðjuverka á samfélagsmiðlum.
Stutt er síðan Þjóðfylkingin, öfgahægri flokkur Marine Le Pen, rak lögreglumann úr öryggisvarðateymi sínu. Myndband birtist þar sem hann lét út úr sér ummæli full kynþáttafordóma og fordóma í garð samkynhneigðra meðan á vakt.
Forsetakosningar eru í Frakklandi á næsta ári. Þar vonast Le Pen eftir kjöri. Hún hefur lengi reynt að snúa við ímynd flokks síns svo hann höfði betur til almennings.