LeJames Norman, fertugur Bandaríkjamaður, var tekinn af lífi í Texas í gær, rúmum tveimur áratugum eftir að hann skaut þrjár manneskjur til bana í misheppnaðri ránstilraun.Norman var tekinn af lífi með banvænni sprautu í ríkisfangelsinu í Huntsville. Þetta var fimmta aftakan það sem af er ári í Texas.Morðin voru framin árið 2005 á heimili í bænum Edna, um 160 kílómetra suðvestur af Houston. Fórnarlömbin voru Samuel Roberts, 24 ára, Tiffani Peacock, 18 ára, og Celso Lopez, 38 ára.
Kinkaði kolli til barna sinna áður en hann var tekinn af lífi