Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, segir að Inga Sæland, formaður flokksins, hafi krafist að koma inn á sjúkrastofu hans þegar hann var að jafna sig eftir hjartaaðgerð til að segja honum að hann yrði að hætta sem ráðherra.
Því hafi hann sagt sig úr flokknum í apríl í vor.
„Það sem varð þess valdandi að ég ákvað að fara úr Flokki fólksins var samtal sem Inga Sæland átti við konuna mína í bifreið, þar sem hún var á leið heim frá sjúkrahúsinu þar sem ég var búinn að vera í aðgerð. Níu dögum eftir aðgerðina,“ segir Guðmundur Ingi.
„Það var samtal um að hún vildi koma inn á sjúkrastofuna og hitta mig vegna þess að henni fannst ég hafa verið allt of lengi frá, níu daga og þetta gengi ekki upp. Ég yrði bara að hætta sem ráðherra.“
Afsagnar krafist á þriðja degi jóla
Guðmundur Ingi segir að eiginkona hans hafi mótmælt þessu. „Hún sagði að aðgerðin hefði heppnast mjög vel og ég væri á góðum batavegi. En hún harðneitaði að hún fengi að koma inn á sjúkrastofuna. Hún lét mig ekki einu sinni vita af þessu samtali.“
Hann segir að tímasetningin hafi slegið sig illa. „Þetta var á þriðja degi jóla. Á milli jóla og nýárs er hvorki þing né annað í gangi þannig að það lá ekkert á að gera þetta, það mátti alveg bíða með þetta þangað til ég væri kominn að minnsta kosti heim.“
En það var ekki í boði að bíða með þessa ákvörðun, segir Guðmundur Ingi.
„Stuttu seinna fæ ég sent frá aðstoðarkonu minni að aðstoðarmaður Ingu hafi hringt í hana og hún sendi mér texta um hvernig ég ætti að segja af mér. Þá fór mér nú að blöskra mikið því aðstoðarkona mín á þessum tíma var eiginkona Ragnars Þórs Ingólfssonar sem átti að fá mína stöðu þegar ég færi út. Þarna fannst mér aðstoðarmenn komnir langt út fyrir sitt svið. Ég hugsaði með mér að svona vinnubrögð gætu bara ekki gengið upp.“
Þannig að ég tók þá ákvörðun að fara ekki í neinn „fæting“, heldur bara gjörsamlega hætta. Þar var það aðallega heilsunnar vegna því ég legg ekki heilsuna undir. Ekki fyrir ráðherrastól, ekki fyrir eitt eða neitt.
Rætt verður við Guðmund Inga Kristinsson í sjónvarpsfréttum í kvöld og lengra viðtal við hann birt á rúv.is.