Inga ætlar að standa með atvinnuvegaráðherra „fram í rauðan dauðann“
Inga Sæland segir langdregið dauðastríð hvala við veiðar vera dýraníð og hyggst standa með atvinnuvegaráðherra þegar frumvarp um hvalveiðar kemur til kasta Alþingis. Ólafur Adolfsson gagnrýndi svör hennar og kvartaði síðar undan svörunum við forseta þingsins.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segist munu standa með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra þegar frumvarp hennar um hvalveiðar kemur til kasta Alþingis.
„Ég mun standa með atvinnuvegaráðherra fram í rauðan dauðann í öllum þeim málum sem við höfum ákveðið að leggja hér fyrir þingið,“ sagði Inga í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.
Hanna Katrín hyggst í febrúar leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar og hefur staðfest að í því verði ákvæði um bann við veiðunum.
Inga hefur áður stutt lagasetningu um bann við hvalveiðum. Hún var sjálf meðal flutningsmanna frumvarps þess efnis sem lagt var fram á Alþingi haustið 2024. Með henni stóðu meðal annars þingmenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar, sem nú sitja með Flokki fólksins í ríkisstjórn.
Frumvarpið hafði ekki orðið að lögum þegar Bjarni Benediktsson, þá starfandi matvælaráðherra, gaf …