Tom Berendsen, utanríkisráðherra Hollands, segir að þó að Íslendingar hafi hafnað aðildarviðræðum við Evrópusambandið hafi þeir ekki hafnað Evrópusamstarfi.
Utanríkisráðherrar Benelux-landanna, Belgíu, Hollands og Lúxemborgar, komu saman í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Þeim varð tíðrætt um nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu og sögðu að Ísland hefði verið í kjörstöðu til að ná góðum samningi en að virða bæri vilja þjóðarinnar.
Berendsen segir það Evrópusambandinu mikilvægt að styrkja tengsl sín við Kanada, Bretland, Ísland og Noreg. Leita þyrfti leiða til þess.
„Hvað við köllum það skiptir ekki öllu máli. Það mikilvægasta er að standa saman andspænis úrlausnarefnum á sviði öryggismála, orkumála, viðskipta og gilda okkar.“