Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið
Auglýsingar á mengandi vörum og þjónustu verða bannaðar í bresku borginni Bristol á auglýsingaskiltum í eigu borgarinnar. Bannið nær meðal annars til hraðtísku, jarðefnaeldsneytisbíla og flugferða.
Borgaryfirvöld í bresku borginni Bristol hafa bannað auglýsingar á öllum vörum sem menga mikið og hvetja til óhóflegrar neyslu, þar á meðal hraðtísku og farartækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Bannið nær þó aðeins til auglýsingaskilta og strætóskýla í eigu borgarinnar. Bristol er fyrsta sveitarfélagið í Bretlandi sem bannar auglýsingar af þessu tagi.
„Guðfeður loftslagsglundroða“
Bannið nær til fjölmargra vöruflokka. Þar á meðal eru hraðtíska, rafrettur, nikótínpúðar, olíuvörur og öll farartæki sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Þá nær bannið einnig til ferðatengdra auglýsinga, eins og flugferða og skemmtisiglinga.
Græningjar eru með meirihluta í borginni. Bannið er aðeins fyrsta skrefið í frekari takmörkunum á auglýsingum og fyrirhugað er að leggja síðar fram tillögur um að bæta fleiri vöruflokkum við, meðal annars kjöti og mjólkurvörum.
Hvatti til banna
António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hvatti þjóðir heims árið 2024 til að banna allar auglýsingar frá olíu-, kola- og gasfyrirtækjum, á sama hátt og auglýsingar tóbaksfyrirtækja hafa verið bannaðar í mörgum löndum.
Þá hvatti hann einnig fjölmiðla og fyrirtæki sem eiga og reka samfélagsmiðla til að hætta að taka við fjármunum vegna auglýsinga frá olíu-, kola- og gasfyrirtækjum.
Guterres hefur kallað forsvarsmenn jarðefnaeldsneytisiðnaðarins „guðfeður loftslagsglundroða“ og sakað þá um grænþvott með dýrum auglýsingaherferðum.
Mengun vegna hraðtísku fer vaxandi
Á hverju ári er hent 92 milljónum tonna af fatnaði. Fyrirtæki á borð við Shein, Temu, H&M og Zara hafa aukið sölu á hraðtískufatnaði verulega. Slíkur fatnaður er gjarnan framleiddur úr ódýrum efnum og endist illa.
Evrópusambandið bannaði nýverið stærstu fatafyrirtækjum Evrópu að henda, brenna eða eyðileggja óseldan fatnað, en talið er að hann nemi um 9 prósentum af öllum seldum fatnaði í Evrópu. Fyrirtækin þurfa þess í stað að reyna að selja vörurnar eða gefa þær til góðgerðarmála.