Arnaldur, sem er mannfræðingur að mennt, hefur starfað fyrir ASÍ frá 2021 en þá var hann ráðinn í starf samfélagsmiðlasérfræðings á skrifstofu sambandsins. Hann hefur þó starfað á fleiri en einum vettvangi undanfarin ár.
Hann greinir frá þessu í Facebook-færslu en 47. þing sambandsins verður haldið 14.-16. október 2026. Núverandi formaður, Finnbjörn A. Hermannsson, hyggst ekki bjóða sig aftur fram sem forseta Alþýðusambands Íslands.
„Ákvarðanir á þeirri vegferð sem ASÍ stendur frammi fyrir eru margar og erfiðar. Þær treysti ég mér til að takast á við með farsælum hætti,“ skrifar hann.
Hann kveðst vilja sjá Alþýðusamband sem geti verið vopnabúr félaganna þegar á reyni en sinni jafnframt „mikilvægustu hagsmunagæslu íslensks samfélags“, það er að segja hagsmunagæslu launafólks.
„Samleið mín með verkalýðshreyfingunni er orðin drjúg. Bæði hef ég gegnt trúnaðarstörfum og starfað innan hreyfingarinnar á fleiri en einum vettvangi undanfarin ár. Þar af starfaði ég fyrir ASÍ í um 6 ár. Fyrir það hef ég starfað á almennum vinnumarkaði alla mína starfsævi í fjölbreyttum störfum.“