Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi segir tillögur að breytingum á kosningalögum gamalkunnar. Hann telur þetta örvæntingarfulla tilraun Viðreisnar til þess að reyna að færa fleiri þingmenn yfir á suðvesturhornið og á Reykjavíkursvæðið.
Skýrsla starfshóps sem dómsmálaráðherra skipaði var birt í gær. Hópnum var falið að koma með tillögur að því hvernig mætti jafna vægi atkvæða á landinu, án þess að ráðast í stjórnarskrárbreytingar.
Í tillögunum er meðal annars lagt til að jöfnunarsætum verði fjölgað úr níu í 27, án þess þó að fjölga þingmönnum. Þá er lagt til að þingsæti verði færð úr norðurkjördæmunum tveimur af Norðurlandi á höfuðborgarsvæðið.
Þyrfti þverpólitíska samstöðu
Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, segir þetta kaldar kveðjur frá forystu Viðreisnar til þingmanna í landsbyggðarkjördæmum.
„Það er svo sem ekkert nýtt undir sólinni í þessum tillögum. En auðvitað lít ég svo á að þetta sé kannski örvæntingarfull tilraun Viðreisnar til þess að reyna að færa fleiri þingmenn yfir á suðvesturhornið og yfir á Reykjavíkursvæðið, svona í ljósi þess að fylgi þeirra er að þurrkast upp í landsbyggðarkjördæmunum.
Jens telur bæði skakkt og skrítið að fjölga jöfnunarþingmönnum svo mikið. Þá þyki honum frekar koma til greina að setjast niður og skoða hvort fjölga þurfi eða fækka kjördæmum.
„Í staðinn fyrir að skipa einhvern vinnuhóp úti í bæ sem er þeim þóknanlegur þá held ég að menn ættu frekar að reyna að búa til þverpólitíska samstöðu í þinginu um það hvernig og hvort það sé ástæða til þess að skoða kosningalöggjöfina með einhverjum hætti.“