Mannréttindasérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna segja rökstuddan grun um að Bandaríkjaher hafi framið stríðsglæpi í stríðinu í Íran með tveimur árásum sínum þar sem 177 almennir borgarar voru drepnir.
Í frétt BBC um málið segir frá skýrslu sjálfstæðrar nefndar um staðreyndaöflun í Íran þar sem þetta er niðurstaðan eftir rannsóknir á loftárásum Bandaríkjahers á skóla í Minab á fyrsta degi stríðsins í Íran og á íþróttamiðstöð í Lamerd.
Bandaríkjaher hefur áður neitað að hafa gert árásina í Lamerd og segir árásina á Minab vera til rannsóknar.
Myndefni af síðarnefndu árásinni birtist fyrir fáeinum mánuðum. Það þótti sýna glögglega að Tomahawk-eldlfaug hafi hæft barnaskólann með þeim afleiðingum að 156 létust, skólabörn að langmestu leyti. Bandaríkjaher er sá eini sem notast við slíkar eldflaugar.
Bandaríkjaher hefur áður sagst hafa stuðst við úrelt gögn við árásina á skólann. Nefndin segir að skólabyggingin hafi verið ætlað skotmark hersins, hvort sem Bandaríkjaher vissi hvort um skólabyggingu væri að ræða eða ekki.