Arnaldur Grétarsson hefur tilkynnt framboð sitt til forseta Alþýðusambands Íslands.
„Mér rennur blóðið til skyldunnar nú þegar ég skynja sterkt ákall um að ASÍ beiti sér af auknum þunga sem helsta afl breytinga og framfara í íslensku samfélagi.
Tímabært er að uppfæra baráttuna og laga hana að þeim miklu áskorunum sem launafólk stendur frammi fyrir,“ skrifar hann í fréttatilkynningu.
Finnbjörn A. Hermannsson, sitjandi forseti ASÍ, tilkynnti á dögunum að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri. Þing ASÍ fer fram um miðjan október. Arnaldur er sá fyrsti sem tilkynnir framboð.
Arnaldur hefur sinnt trúnaðarstörfum og starfað innan verkalýðshreyfingarinnar undanfarin ár. Þar af starfaði hann fyrir ASÍ í um sex ár.
Arnaldur er mannfræðingur að mennt. Hann hefur starfað sem samfélagsmiðlasérfræðingur hjá ASÍ og við markaðssetningu.
„Ég trúi á sterkt og framsækið Alþýðusamband sem þjónustar aðildarfélögin með öflugum hætti. Ég vil sjá Alþýðusamband sem getur verið vopnabúr félaganna þegar á reynir en sinnir á sama tíma mikilvægustu hagsmunagæslu íslensks samfélags. Hagsmunagæslu launafólks,“ skrifar hann.