Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, tilkynnti í dag að Írland muni ekki taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, á næsta ári. Keppnin fer fram í Búlgaríu. RTÉ greinir frá.
Írland var meðal fimm þjóða sem sniðgengu keppnina í fyrra. Hinar fjórar voru Spánn, Holland, Slóvenía og Ísland.
Írar eiga glæsta sögu í keppninni. Auk Svía hafa þeir oftast allra þjóða unnið keppnina, sjö sinnum. Þá eru þeir eina þjóðin sem unnið hefur þrisvar í röð (1992, 1993 og 1994). Þeir hafa þó ekki unnið síðan árið 1996.
Sniðganga þrátt fyrir úrbætur
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, hafa gert breytingar á fyrirkomulagi keppninnar til að reyna að koma til móts við gagnrýni.
Til að mynda verður aftur dómnefnd á undanúrslitakvöldum og hámarksfjöldi atkvæða með hverri atkvæðagreiðsluaðferð verður lækkaður úr 20 í 10. Þá tilkynnti EBU í síðasta mánuði að sjónvarpsstöðvar mættu ekki halda keppnina ef landið tekur þátt í vopnuðum átökum eða er í „viðkvæmri heimspólitískri stöðu“.
Í tilkynningu RTÉ segir að þrátt fyrir þessar úrbætur sé afstaða stöðvarinnar til þátttöku í keppninni óbreytt vegna áframhaldandi mannfalls og mannúðarkrísu á Gaza í kjölfar stríðsreksturs Ísraels.
Einnig lýsir RTÉ miklum áhyggjum af því að erlendir blaðamenn fái ekki óhindraðan aðgang að átakasvæðinu.