Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðuneytið hafi ekki farið að lögum þegar það staðfesti ákvörðun Þjóðskrár Íslands um að synja umsókn konu um nafnabreytingu. Konan hafði sótt um að taka upp ættarnafn ömmu sinnar sem er látin. Vildi konan skipta föðurnafni sínu út fyrir ættarnafnið. Vísaði konan meðal annars til þess að amma hennar hefði gegnt stóru hlutverki í uppvexti hennar og lífi allt fram til þess að hún lést.
Fóru ekki að lögum í máli konu sem vildi heiðra ömmu sína