Ný íslensk gervigreindarlausn, Treyst.ai, sem hefur það að markmiði að vakta lagabreytingar og einfalda innleiðingu ESB- og EES-löggjafar á Íslandi hefur litið dagsins ljós.
Safa Jemai, forstjóri Víkonnekt, sem stendur að baki lausninni, segir Ísland leiðandi á þessum þessu sviði gervigreindar. Treyst.ai var þróað í samstarfi við EFTA, ESA, ráðuneyti á Íslandi og Landsvirkjun.
Safa útskýrir að á ári hverju taki Ísland inn 500 ný lög í gegnum EES-samninginn. „Þessar 500 löggjafir taka ofboðslega mikinn tíma hjá ráðuneytum. Þessi vinna er bæði flókin og þetta er mikil handavinna. Innleiðingin getur tekið allt upp í nokkur ár að klára,“ segir hún.
Ekki þarf að fækka sérfræðingum
Með lausninni segir Safa að vinnan við innleiðingu taki allt að 80 prósent minni tíma auk þess að koma í veg fyrir mannleg mistök og gullhúðun.
Sparnaðurinn fyrir ríkið geti því verið mikill. Hún segir þó ekki markmiðið að skipta sérfræðingum út fyrir gervigreind. „Heldur frekar að okkar lögfræðingar noti lausnina til að efla sig í vinnunni.“
Safa segir Ísland leiðandi á þessu sviði og önnur ríki hafi sýnt lausninni áhuga. Verkefnið sé það fyrsta á EES- og ESB-svæðinu sem reynir að finna lausn sem þessa.
„Við erum í sambandi við Noreg, Þýskaland og Austurríki. Við höfum verið í sambandi við ráðuneytin þar og erum að skoða hvernig er hægt að innleiða lausnina.“