Andrea Diljá Ólafsdóttir, sérkennari á Akureyri, hefur notað hesta í kennslu sinni til barna á aldrinum 12 til 16 ára í vetur. Verkefnið sem ber nafnið með tengsl við tauminn hefur vakið mikla athygli og ánægju meðal þátttakenda. Verkefnið snýst um að skapa umhverfi fyrir börn sem gengur illa innan veggja hefðbundinna skólastofa.
Á vef Akureyrarbæjar segir þetta um verkefnið:
„Með tengsl við tauminn er hestamiðað náms- og velferðarúrræði fyrir börn og ungmenni á aldrinum 12–16 ára sem glíma við kvíða, skólaforðun, lágt sjálfsmat eða aðrar áskoranir sem geta gert hefðbundið skólaumhverfi erfitt.“