Um tvö hundruð og fimmtíu heyrnarlausir taka þátt í norrænni menningarhátíð heyrnarlausra sem fram fer á Selfossi þessa dagana.
Fánum þjóðanna sem taka þátt í menningarhátíðinni er öllum flaggað á fánastangirnar við hringtorgið hjá Ölfusárbrú og verða uppi þar til hátíðinni lýkur 2. ágúst. Hátíð sem þessi er haldin á fjögurra ára fresti og ferðast á milli Norðurlandanna. Síðast var hún hér á landi árið 2006 og þá haldin á Akureyri. Setningarathöfn hátíðarinnar fór fram í stóru tjaldi í Sigtúnsgarði í gærkvöldi.
„Þetta er bæði heiður og stolt og að standa í þessum undirbúningi, sem er búinn að standa í fjögur ár verða að veruleika, það er léttir og það er spennufall líka,” segir Daði Hreinsson, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra.
„Það er mikil stemning og mikill spenningur eins og ég segi, fólk er bara búið að bíða bæði eftir að halda mótið og fyrir fólk að koma en það er alltaf vinsælt að koma til Íslands og nú er gaman,” segir Daði.
Heiðdís Dögg Eiríksdóttir á von á mikilli gleði og skemmtun um helgina en það er Ástbjörg Rut Jónsdóttir sem túlkar fyrir hana.
„Það er rosalega mikið prógramm hjá okkur. Það eru sýningar, listasýningar og uppistand og alls konar skemmtiatriði. Það er líka mjög skemmtilegt prógramm líka fyrir börn og unglinga og bara allt mögulegt,” segir Heiðdís Dögg.
Þannig að Selfoss er staðurinn næstu daga?
„Já, algjörlega, þetta er besti staður á landinu til að halda partí, það er náttúrlega hér,” segir Heiðdís.
En er sama táknmál talað í öllum löndum?
„Þetta er góð spurning, það er bara alls ekki sama táknmálið. Það er sér táknmál á hverjum stað í öllum heiminum. Það eru einhver þrjú hundruð og þrjátíu mismunandi táknmál sem eru töluð í heiminum,” segir Heiðdís Dögg.