Norska utanríkisráðuneytið staðfesti í dag að norskur ríkisborgari hefði verið handtekinn í Rússlandi. Þá ítrekaði ráðuneytið um leið ráðleggingar um að ferðast ekki til landsins sem ætti í stríði við Úkraínu.
„Við getum staðfest að norskur ríkisborgari hefur verið handtekinn í Rússlandi,“ sagði ráðuneytið í yfirlýsingu til AFP án þess að gefa frekari upplýsingar um einstaklinginn eða aðstæður.
Ríkisstjórnin hefur ráðlagt gegn ferðalögum til Rússlands frá innrásinni í Úkraínu árið 2022 og tekið fram að sendiráð þess í Moskvu hafi takmarkaða möguleika á að veita ræðisaðstoð.