Mikill erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra síðasta sólarhringinn. Fjöldi fólks er á Akureyri um þessar mundir þar sem hátíðin Ein með öllu fer fram og tónleikar FM95BLÖ fóru fram á Akureyrarvelli í gærkvöld.
Alls eru skráð 83 mál hjá lögreglu síðastliðinn sólarhring og tveir gistu í fangageymslu lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Vopnalagabrot á Akureyrarvelli
Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglu og er hún nú til rannsóknar. Þá voru níu einstaklingar handteknir og einn þeirra vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæðinu á Akureyrarvelli. Það mál er einnig til rannsóknar.
Fjórir voru handteknir vegna fíkniefnalagabrots og var einn þeirra vistaður í fangageymslu. Málið er til rannsóknar.
Enginn grunaður um akstur undir áhrifum
Átta mál á borði lögreglu tengdust ölvunar- og vímuástandi. Þá eru fimm mál skráð þar sem lögregla hafði afskipti af unglingadrykkju. Barnavernd og foreldrar voru upplýst.
Tíu umferðarlagabrot komu upp en ekkert tilfelli þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa.
Engin mál eru skráð hjá lögreglunni á Siglufirði vegna fjölskylduhátíðarinnar Síldarævintýris.