Ríkisstjóri Kaliforníu, Gavin Newsom, lýsti yfir neyðarástandi í ríkinu í gær vegna El Niño. Talið er að veðurfyrirbærið geti orsakað öfluga storma í Kaliforníu og hærri sjávarstaða geti valdið flóðum við ströndina.
Newsom sagði að ríkið þyrfti að hafa vaðið fyrir neðan sig í stað þess að takast á við vandann þegar skaðinn væri skeður. Hann sagði að þessar aðgerðir væru til að veita þann stuðning sem þörf væri á og undirbúa ríkið og íbúana fyrir áhrif af El Nino.
Með því að lýsa yfir neyðarástandi er hægt að hefja undirbúning til að takast á við mögulegar afleiðingar El Niño með fyrirvara, auðvelda ríkisstofnunum aðgang að úrræðum og koma búnaði eins og sandpokum og dælum til þeirra svæða þar sem hætta er á flóði.
Við yfirlýsinguna byrjar þjóðvarðarlið Kaliforníu að skipuleggja sitt starf, viðbrögð við flóði, leit og björgun, flutninga og fleira.
Nú þegar er El Niño farinn að hafa áhrif í Kaliforníu. Stormviðri hafa valdið tjóni og eyðilagt heimili við ströndina. Þá þurfti að aflýsa tónlistarhátíð í Santa Monica vegna mikils strandrofs.
Um 75 prósenta líkur eru sagðar á því að El Niño-veðurfyrirbærið í ár verði það öflugasta í sögunni, samkvæmt bandarísku haf- og loftslagsstofnuninni. El Nino er nú þegar farið að valda öfgum í veðurfari víða um heim, en talið er að El Nino muni ná hámarki sínu á tímabilinu frá október og fram í desember.