Frá og með deginum í dag er hægt að greiða atkvæði utan kjörfundar í Kringlunni í Reykjavík. Þar er opið frá klukkan tólf á hádegi til lokunar. Þessi kjörstaður er til viðbótar við Hlíðarsmára 1 í Kópavogi.
„Kjörsókn er mjög góð. Hún er betri en við bjuggumst við,“ segir Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu.
Frá því að utankjörfundaratkvæðagreiðslan hófst 27. júlí hafa um það bil 11.500 greitt atkvæði á höfuðborgarsvæðinu – alls hafa nærri 17.900 greitt atkvæði.
„Þetta er mun meira en við sáum bæði í forsetakosningum og Alþingiskosningum 2024, þetta virðist vera svipað og í forsetakosningunum 2020 – þá voru tæplega 40 þúsund manns sem kusu hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Sigríður.
Sigríður segir of langt liðið frá síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu til að bera þessa atkvæðagreiðslu saman við hana.
„Það virðist vera mikill áhugi á þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem er gaman, það eru 272 þúsund rúmlega sem eru á kjörskrá, við eigum von á mikilli kjörsókn tel ég og spennandi kosningavöku 29. ágúst,“ segir hún.