Litlu mátti muna að alvarlegur árekstur yrði í Víðigerði í dag þegar ökumaður tók fram úr bílalest.
Vegfarandi sem átti leið hjá sendi mbl.is myndskeið þar sem sjá má ökumann Range Rover-jeppa taka fram úr bílalest með þeim afleiðingum að ökumenn tveggja bifreiða úr gagnstæðri átt þurftu að aka út af veginum til að forða sér frá slysi.
