Minna varð úr boðuðum mótmælum gegn óskráðum innflytjendum í Suður-Afríku í gær en óttast var. Mótmælahreyfingar höfðu gefið fólki frest til dagsins í gær til að yfirgefa landið eða taka afleiðingunum ella.
Mótmæli fóru sannarlega fram víða um landið þar sem þúsundir gengu fylktu liði um götur borga og bæja. Lögregla hafði gert ráðstafanir og segir samkomurnar hafa að mestu verið friðsamlegar en þó hafi 900 manns verið handteknir og sumir rósturseggir fóru ránshendi um verslanir.
AFP hefur eftir Tendai Mbanje, sérfræðingi í stjórnsýslu við háskólann í Pretoríu, að skipuleggjendur mótmælendanna hafi ofmetið stuðninginn við málstað sinn.
Ef ekki hefði verið fyrir stuðning nokkurra minni stjórnmálaflokka hefði mætingin verið enn dræmari.
Síðustu vikur hafði þrýstingurinn á innflytjendur magnast stöðugt.
Þúsundir höfðu þegar yfirgefið landið af ótta við hvað þeirra gæti beðið. Reiði mótmælenda beinist að innflytjendum frá öðrum Afríkuríkjum eins og Simbabve, Mósambík og Malaví. Margir hafa komið þaðan til Suður-Afríku í leit að vinnu vegna bágrar efnahagsstöðu í heimalandi þeirra.
Mótmælendur halda því fram að innflytjendur stundi glæpi og taki störf frá heimafólki. Þetta kyndir undir spennu, ekki síst í bæjum þar sem fátækt og atvinnuleysi er mikið og löggæsla af skornum skammti.
Sérfræðingar hafa bent á að í grunninn snúist málið ekki endilega um innflytjendur sem slíka, heldur liggi djúpstæðari vandamál þar undir. Óvíða er meira atvinnuleysi en í Suður-Afríku, þriðjungur landsmanna er án vinnu.
Þá hafi stjórnvöld ekki gert nóg til að bæta ástandið og mikil spilling sé landlæg.