Fjöldi svartklæddra mótmælenda í lambhúshettum lokaði veginum að höfninni í Dover í suðurhluta Englands í morgun með þeim afleiðingum að umferð til og frá höfninni stöðvaðist.
Erlendir fjölmiðlar hafa eftir sjónarvottum að mótmælendur gætu verið um 300 talsins. Þeir komu saman fyrir klukkan sjö að staðartíma til að mótmæla komu flótta- og förufólks til Bretlands og hafa hrópað slagorðið „Stöðvið bátana!“
Hreyfing komst á umferð að nýju um klukkan 11.
Bresk stjórnvöld hafa á undanförnum árum reynt að finna leiðir til að fækka ferðum flóttamanna yfir Ermarsund. Ferðirnar eru hættulegar og fjöldi fólks hefur farist í tilraunum til að komast frá meginlandi Evrópu til Bretlands.
Margra kílómetra langar bílaraðir
Miklar tafir hafa orðið á umferð við höfnina í morgun og bílaraðir náðu margra kílómetra lengd.
Yfir sumarmánuðina fara um 10 þúsund flutningabílar og 15 þúsund fólksbílar um höfnina í Dover sem sinnir um þriðjungi vöruútflutnings Breta til Evrópusambandsins.
Mike Tapp, þingmaður Verkamannaflokksins í Dover og Deal, gagnrýndi mótmælin í færslu á Facebook.
„Ég er kominn með nóg af hálfvitum sem koma til Dover til að valda truflunum,“ skrifaði Tapp. „Ég þori að veðja að ef þú spyrð „mótmælendur“ þá myndu þeir ekki vita að ferðum lítilla báta yfir sundið hefur fækkað um 40% og við leggjum mikið á okkur til að draga úr þessum vandræðum.“