Heiða Björg Hilmisdóttir hefur notað innkaupakort sem hún hefur til umráða sem borgarstjóri fyrir 753 þúsund krónur síðan hún tók við embætti í febrúar í fyrra. Það er rétt tæplega tvöfalt meira en Einar Þorsteinsson gerði í rúmlega árslangri borgarstjóratíð sinni, en hann notaði kortið fyrir 378 þúsund krónur. Dagur B. Eggertsson notaði kortið aldrei á þessu kjörtímabili. Hann var borgarstjóri í rúmt eitt og hálft ár.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu. Í færsluyfirliti má sjá að Einar notaði kortið einungis til að greiða fyrir leigubíla og hótel erlendis. Heiða Björg hefur einnig notað kortið til að greiða fyrir hótel erlendis auk flugferða, en hún hefur líka notað það á fjölda veitingahúsa bæði hérlendis og erlendis.
Í svari borgarinnar við fyrirspurn fréttastofu segir að Heiða Björg hafi notað kortið til að greiða fyrir áfengi, þó ekki liggi fyrir hversu mikið þar sem ekki allir reikningar hafi skilað sér.
Strangar reglur eru settar um skil reikninga í reglum um notkun innkaupakorta Reykjavíkurborgar og samkvæmt þeim er ekki heimilt að kaupa áfengi nema að fenginni sérstakri heimild.
Heiða Björg segir í samtali við fréttastofu að heimild hafi legið fyrir áfengiskaupum í þau skipti sem þau voru gerð. Mjög strangar reglur gildi um bókhald borgarinnar.
Hæstu greiðslur Heiðu Bjargar með innkaupakortinu eru vegna flugferðar, 300 þúsund krónur. Það segir Heiða haga verið vegna verkfalla hjá Finnair þegar hún var í opinberri heimsókn í Japan með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Hún hafi þurft að bóka flugið um með skömmum fyrirvara og um miðja nótt og verið leiðbeint að gera það með þessum hætti.
Fréttin var uppfærð með svari borgarstjóra um áfengiskaup og flugferð heim frá Japan.