Meðal gesta sem mættu á frumsýninguna með börnum sínum voru Jón Jónsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ásamt systur sinni Nínu, Karl Sigurðsson (Baggalútur), Helga Gabríela, Hugi Halldórsson, Kamilla Pálmadóttir, Kristín Avon, Marín Manda, Pattra Sriyanonge og Tara Sif.
Einnig voru á meðal gesta þau Orri Huginn Ágústsson, sem ljær Maui (Dwayne Johnson) rödd sína í íslensku talsetningu myndarinnar, og Rán Karlsdóttir, sem ljær Baby Vaianu rödd sína.
Stemningin var einstaklega góð frá upphafi til enda. Börnin tóku virkan þátt í ævintýrinu, hlógu, og fögnuðu uppáhaldspersónunum sínum. Við lok sýningar voru viðbrögðin afar jákvæð og ljóst að Vaiana hafði heillað yngstu áhorfendurna jafnt sem foreldrana sem fylgdu þeim.
Disney Vaiana er nú komin í bíó, bæði með íslensku og ensku tali, og býður upp á stórbrotið ævintýri fyrir alla fjölskylduna.