Þá fékk lögreglan útkall um konu sem væri sofandi í versluninni. Þegar á vettvanginn var komið var konan í raun ekki sofandi heldur að þykjast. Hún hafði stolið rándýrum lampa.
Þættirnir Dagbók lögreglu byggja á raunverulegum útköllum sem hafa komið fyrir í dagbók lögreglunnar. Hér að neðan má sjá atriðið sjálft.
Á meðal leikara eru Aron Már Ólafsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jörundur Ragnarsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Leikstjórn er í höndum Ólafs Ásgeirssonar og framleiðendur eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.