Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í dag að Serbar „verða á skýran hátt að ákveða hvar þeir sjá framtíð sína“, á ráðstefnu Evrópusambandsins og Austur-Evrópuþjóða sem hafa sótt um aðild að bandalaginu.
„Það má ekki viðgangast sú stefna að flakka á milli Rússlands, Kína og Evrópu,“ sagði Merz á ráðstefnunni í Svartfjallalandi og bætti við:„Þegar svarið frá Serbíu er Evrópa, þá verður svarið frá Evrópu, Serbía.“
„Leiðin er opin fyrir Serbíu inn í Evrópusambandið en Serbar verða að ákveða hver afstaða þeirra er,“ sagði hann.
Alls búa 6,6 milljónir manna í Serbíu, sem er fjölmennasta þjóðin á vesturhluta Balkanskaga. Serbar eru einnig á meðal þeirra sem hafa mestar efasemdir í garð ESB á svæðinu. Stuðningur fyrir aðild að ESB er undir 50 prósentum.
Hefur heimsótt Rússland og Kína
Stjórnvöld í Serbíu hafa viðhaldið sterkum tengslum við Rússa og síðasta ár fór forsetinn Aleksandar Vucic til Rússlands til að taka þátt í hátíðarhöldum til að minnast þess að 80 ár voru liðin frá sigri Sovétmanna í síðari heimsstyrjöldinni.
Serbía hefur einnig átt í nánu sambandi við Kína og hefur notið góðs af auknum fjárfestingum Kínverja í Serbíu undanfarinn áratug.
Í síðasta mánuði heimsótti Vucic Kína og þjóðirnar tvær undirrituðu tvíhliða samninga um viðskipti, tækni og menntun.
Vucic var einnig á ráðstefnunni í Svartfjallalandi í dag og sagðist hafa átt „mjög góða fundi“ með Merz, Emmanuel Macron Frakklandsforseta og þeim Ursulu von der Leyen og Antonio Costa, ráðamönnum hjá ESB.
