Merki eru um kólnun í hagkerfi Kína eftir eina verstu ársfjórðungsútkomu sem mælst hefur. Nýjustu tölur benda til þess að ástandið hafi ekki skánað í júlí.
Kína er næststærsta hagkerfi veraldar, á eftir Bandaríkjunum. Útkoma annars ársfjórðungs sýndi að efnahagur landsins óx um 4,3 prósent, sem er ein versta mæling síðan þær hófust á tíunda áratugnum. Markmið ríkisstjórnarinnar var hagkerfið yxi um 4,5 til 5 prósent.
Mælingarnar skánuðu ekki í júlí. Samkvæmt hagstofu landsins stöðvuðust neysluútgjöld og fjárfestingar í borgum drógust hraðar saman á meðan atvinnuleysi jókst. Smásala jókst um 0,6 prósent sem er hægari vöxtur en í júní, þrátt fyrir útgjöld ferðamanna á þessum tíma árs.
Sérfræðingar höfðu spáð 1,5 prósenta vexti. Hagstofan sagði öfgakennt veðurfar, bæði mikill hiti og rigningar og flóð, hafa raskað framboði og eftirspurn á markaði. Nýjasta yfirlitið eykur þrýsting á stjórnvöld að styðja við virkni í hagkerfinu.
Li Qiang forsætisráðherra Kína gaf í skyn í dag að viðleitni til að efla eftirspurn eftir vörum erlendis gæti bætt upp veika innlenda eftirspurn. Sérfræðingar búast við meiri vexti síðar á þessu ári.