Sameinuðu þjóðirnar segja að 37% aukning hafi orðið í fjölda almennra borgara sem hafi látið lífið í innrásarstríði Rússa í Úkraínu á fyrri hluta ársins samanborið við sama tíma í fyrra. Rússar og Úkraínumenn hafa aukið loftárásir á báða bóga undanfarna mánuði og lítið sem bendir til þess að stríðinu sé að ljúka.
Danielle Bell, yfirmaður mannréttindaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu, sagði við fjölmiðla í Genf í Sviss í dag að 1.396 almennir borgarar hefðu verið drepnir og 7.978 særst í stríðinu það sem af er ári.
Það sé 37% aukning frá sama tíma í fyrra og nærri tvöfalt meira en stofnunin skráði 2024.
Bell segir að skýringin sé að hluta til vegna aukinnar notkunar stríðandi fylkinga á langdrægum eldflaugum og drónum. Þeim sé hægt að beita á þéttbýl svæði sem eru langt frá víglínunni.
Hún nefndi sem dæmi loftárás á Kyiv fyrr í mánuðinum þar sem hluti fjölbýlishúss hrundi til grunna. 19 voru drepnir í árásinni og 76 særðust.
Hún benti einnig á mikla aukningu í mannfalli almennra borgara í Rússlandi vegna aukinna loftárása Úkraínumanna. 250 hið minnsta hefðu verið drepin og 1.596 særst í árásum í Rússlandi fyrstu sex mánuði ársins. Það sé 121% aukning miðað við síðasta ár.
Talsmaður Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna benti á að það væri mjög skýrt í lögum að almennir borgarar og borgaralegir innviðir nytu verndar alþjóðlegra mannúðarlaga og allar vísvitandi árásir væru stríðsglæpur.