Ellefu hafa verið handteknir hér á landi og tveir erlendis í tengslum við andlát karlmanns á Kársnesi í Kópavogi á sunnudag. Þrír sátu í gæsluvarðhaldi en einum þeirra hefur verið sleppt. Yfirlögregluþjónn segir að svo virðist vera sem eggvopni hafa verið beitt við árásina. Tildrög árásarinnar séu óljós.
Telja að eggvopni hafi verið beitt
Maðurinn sem lést var pólskur ríkisborgari á fimmtugsaldri. Hann hefur verið búsettur í Kópavogi undanfarin misseri og á fjölskyldu hér á landi.
Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn á frumstigi.
„Lögreglan er kölluð að Vallargerði í Kópavogi og þar er þá úti mikið slasaður maður með mikla áverka og var hann fluttur á slysadeild í kjölfarið. Við teljum að eggvopni hafi verið beitt, að það hafi verið ráðist á hann inni í húsinu. En á þessu stigi máls vitum við ekkert frekar,“ segir Elín Agnes. Vopnið sé enn ófundið.
Rannsóknin umfangsmikil og flókin
Nágrannar sem fréttastofa talaði við um helgina segjast hafa séð tvo dökkklædda menn koma út úr bíl í götunni og ganga að húsinu við Vallargerði. Um fimmtán mínútum síðar hafi lögreglan mætt á vettvang og var maðurinn fluttur til aðhlynningar á Landspítalann. Hann lést síðdegis sama dag.
Elín Agnes segir rannsóknina bæði umfangsmikla og flókna. Lögregla hafi ráðist í húsleit vegna málsins og einnig leitað í bílum. Þá var lögregla með aðgerðir í Gnoðarvogi í Reykjavík.
„Upplýsingar sem við fáum í kjölfar þessa máls í Vallargerði verða til þess að við förum í Gnoðarvoginn og handtökur eiga sér stað þar.“
Rannsóknin teygir anga sína til meginlands Evrópu
Þrettán hafa verið handteknir vegna málsins, ellefu hér á landi og tveir í sitt hvoru landinu á meginlandi Evrópu. Þeir sitja í gæsluvarðhaldi ytra og eru erlendir ríkisborgarar.
Elín Agnes segist ekki vilja gefa upp hvort tengsl séu á milli hins látna og árásarmannanna. Þá sé ekki hægt að fara út í það á þessu stigi máls hvort manndrápið tengist skipulagðri brotastarfsemi.
Þrír voru settir í gæsluvarðhald hér á landi, einn íslenskur ríkisborgari og tveir erlendir. Einum þeirra hefur verið sleppt.
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir hinum tveimur rennur út á næstu dögum. Spurð hvort til standi að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald segir Elín Agnes það velta á því hvað komi út úr rannsókninni.
„Það er mikið af munum og tækjum sem þarf að skoða, framburðir og vitni sem þarf að tala við og annað slíkt. Þannig að það er eitt sem er til skoðunar.“
Nokkrir þeirra sem voru handteknir eru enn í haldi lögreglu segir Elín Agnes – allir erlendir ríkisborgarar. Hún segir skýrslutökur standa yfir og því óljóst hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Spurð segir hún að ekki liggi grunur um að fleiri eigi aðild að málinu.
„Við erum bara á frumstigi í þessari rannsókn og alls konar upplýsingar eiga væntanlega eftir að koma í ljós. Þetta er mikil vinna og margar skýrslur sem þarf að taka, margir sem þarf að tala við. Svo þarf í kjölfarið að teikna upp og sjá hver staðan er.“