55 ára gömlum manni frá Georgíu hefur verið birt fyrirkall og ákæra í Lögbirtingablaðinu.Er hann ákærður fyrir tvö brot, annars vegar fyrir þjófnað á vörum fyrir rúmlega 4 þúsund krónur í Hagkaup Spönginni. Brotið var framið 1. febrúar 2024.Hins vegar er hann ákærður fyrir brot gegn lögum um útlendinga með því að hafa komið aftur til landsins eftir að honum hafði verið brottvísað og settur í endurkomubann á Schengen-svæðið, samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar. Í ákærunni segir orðrétt:
Maður á sextugsaldri kom aftur til landsins eftir brottvísun og hélt áfram að brjóta af sér