Lára Clausen birti færslu á Facebook þar sem hún segir tvo menn hafa verið á ferðinni þegar bifreið hennar var stolið. Bíllinn er hvítur Ford Mustang með skráningarnúmerið DRZ69.
Lára segir að þjófnaðurinn hafi átt sér stað í læstum bílakjallara við heimili hennar og biðlar hún til almennings um að hafa augun opin fyrir bílnum.
„Yrði ótrúlega þakklát ef fólk hefði augun opin og myndi láta mig eða lögregluna vita ef þið yrðuð vör við bifreiðina eða manninn,“ skrifar hún í færslunni.
Myndir úr öryggismyndavélum sem fylgdu færslunni sýna tvo menn sem grunaðir eru um verknaðinn auk myndar af bifreiðinni.
Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um málið eru hvattir til að hafa samband við Láru eða lögreglu.