Gustav Gellerbrant, yfirmaður samhæfingarskrifstofu Svíþjóðardemókrata og einn helsti lykilmaður flokksins, hyggst taka sér leyfi frá störfum eftir að Polina Malaberg, sambýliskona hans, var sökuð um að dreifa rússneskum áróðri.
Gellerbrant sagði í færslu á Facebook ásakanirnar vera rógsherferð sem hefði lagt ómanneskjulega þungar byrðar á fjölskyldu hans undanfarna viku.
Sænski miðillinn Expo sagði Malaberg hafa í heilan áratug dreift greinum og færslum af vefsíðum og rásum þekktum fyrir að reka áróður fyrir rússnesk stjórnvöld og dreifa fölskum upplýsingum.
Meðal annars er Malaberg sögð hafa deilt efni þar sem innlimun Krímskaga er varin og Vladimír Pútín forseta hampað. Hún starfar sem sérfræðingur Svíþjóðardemókrata á sænska þinginu.
Gellertbrant segir málið allt slitið úr samhengi en ákvað að skila tölvu sinni og aðgangskorti meðan málið væri rannsakað. Forsætisráðherrann Ulf Kristersson segir það góða lausn í samtali við SVT.
Hann segir það á sína ábyrgð að allur öryggisaðgangur á ríkisstjórnarskrifstofunum sé tryggður. Minnihlutastjórn Kristersson hefur starfað í tæp fjögur ár með stuðningi Svíþjóðardemókrata. Þingkosningar verða haldnar næsta sunnudag.