Ísraelsher hefur gert loftárásir á bæinn Deir Zahrani í suðurhluta Líbanons í kvöld og nótt. Sjónvarpsstöð Hezbollah-hreyfingarinnar al-Manar greinir frá árásunum. Skömmu fyrir árásirnar skipaði Ísraelsher íbúum bæjarins að forða sér með tilkynningu á arabísku og sagði bækistöð Hezbollah í bænum vera skotmarkið.
Herinn sagði Hezbollah hafa lagt með sprengidróna til atlögu við sveitir hans án þess að tilgreina hvort nokkur hefði hlotið skaða af. Joseph Aoun forseti Líbanons biðlaði í gær til Bandaríkjamanna og alþjóðasamfélagsins að stöðva árásir Ísraelshers á landið.
Þá hafði herinn skipað íbúum Arab Salim að koma sér brott vegna fyrirhugaðra árása á bækistöð Hezbollah í bænum. Það var í fyrsta sinn í heilan mánuð sem herinn gaf út slíka tilkynningu.
Líbanon sogaðist inn í átökin í Mið-Austurlöndum í mars eftir að Hezbollah hóf árásir á Ísrael til stuðnings bakhjörlum sínum í Íran. Ísraelsher svaraði með loftárásum og innrás í Líbanon. Stjórnvöld í Beirút segja Ísraelsher hafa drepið yfir 4.300 manns í atlögum sínum.
Dregið hefur úr ofsanum eftir viljayfirlýsingu Bandaríkjanna og Írans í júní varðandi átökin og rammasamkomulag Ísraels og Líbanons síðar í sama mánuði. Ísraelsher starfar að mestu innan öryggissvæðis sem hann skilgreindi sjálfur og nær um tíu kílómetra inn í Líbanon meðfram landamærum Ísraels.