Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sá því um að reykræsta hótelið samkvæmt dagbók lögreglunnar. Sömuleiðis var tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi í Kópavogi en við athugun kom í ljós að einn íbúinn var að grilla.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Tilkynnt var um innbrot á veitingastað í Vesturbænum og er málið í rannsókn.
Að minnsta kosti tvö umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu. Annað í Grafarvogi þar sem engin slys urðu á fólki en eitt ökutæki var óökufært. Þá varð hitt umferðarslysið í Hafnarfirði þar sem rafmagnshlaupahjóli var ekið aftan á bíl. Engin slys urðu á fólki.
Lögreglan hafði þá afskipti af ökumönnum og fengu þó nokkrir sekt fyrir hin ýmsu umferðarlagabrot samkvæmt dagbókinni.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.